Ég heiti: Ingunn Heiða
-er þó alltaf kölluð Heiða.

Ég er fædd þann: 9. desember 1984 og á hverju ári þann dag tek ég glöð á móti gjöfum...eða nei...alla daga ársins er ég boðin og búin til þess að taka glöð á móti gjöfum ;)

Ég bý: Í melgerði 9, íbúð 0203, 730 Reyðarfirði...Ég vil sendibréf frá ykkur takk!!

E-mail: heida84@yahoo.com

Staða í þjóðfélaginu: Ég er allskonar starfsmaður á Fjarðarhóteli..Reyndar þjóna ég mest

Hjúskaparstaða: Ég á eitt stykki kærasta svo ég er á blýföstu :)

Símanúmer: Já eða bara ekki =)

<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Thursday, October 15, 2009
Þá er komið að því!!

Sælt veri fólkið! Það er sko ýmislegt sem tekur frá manni tíma þegar maður er með lítið barn.. En núna er komin regla á hana og ætti ég að hafa einhvern smá tíma annað slagið til þess að hnipra einhverjar smá vangaveltur niður.. Ekki veit ég þó hvort það sé til góðs.. Kristjana Rebecca er lasin akkúrat núna, er með einhvern leiðindar hita og sefur illa á nóttunni... En er samt ekkert nema hress á daginn.. Hún stóð fyrir framan tölvuna áðan að hlusta á fairytale með Alexander Rybak, dansaði og dansaði og sló svo á lærið á sér annað slagið... Sem mér fannst ferlega fyndið því ég geri þetta alltaf þegar ég hlusta á þetta lag með henni og hún er búin að herma það eftir mér, ég gerði mér enga grein fyrir því að þau byrjuðu á því svona snemma... Spurning um að fara að vanda helvítis málfarið hmmm.... Þetta lag er samt svo dásamlegt að því leitinu til að þetta er fyrsta lagið sem hún sýndi einhver viðbrögð yfir og þá rétt rúmlega hálfs árs og núna næstum hálfu ári seinna er þetta ennþá uppáhaldslagið hennar :) Hún er alveg að fara að labba, hún getur það alveg, ég held hún nenni bara ekki að standa í því fyrr en hún getur hlaupið um.. Kemst hraðar um skríðandi akkúrat núna.. Ég byrjaði í Menntaskólanum á Egilsstöðum núna í haust en við Brian vorum að skilja og ég þyrfti að hætta í framhaldi af því, enda dýrt að vera í námi... Merkileg samt skilaboðin sem maður fær samt frá samfélaginu.. Vertu frekar á bótum að klóra þér í rassgatinu en að mennta þig og þannig búa þér og þínum betri framtíð svo þú þurfir ekki að vera á bótum... Ég fór í skólann í dag til að ganga frá úrsögninni minni og maður hálf klökkanði.. Námsráðgjafinn var ekkert á því að leyfa mér að hætta og á meðan ég var þarna komu til mín 2 kennarar og sögðu mér að ég væri svo góður nemandi og það yrði eftirsjá af mér... En einhvern daginn þá verð ég rík af því að nýta reynslu lífsins, þar sem ég er búin með nokkur ár í skóla lífsins og hef þá kannski efni á að komast aftur í nám og fá þessar gráður sem eru metnar í allt í okkar samfélagi... Afhverju er maður aldrei spurður í gegnum hvað maður hefur gengið í lífinu og hvernig maður tæklaði það, hvernig maður kom út úr því osfrv... Ég gæti sennilega fengið ágætlega launaða vinnu út á svoleiðis ;) En núna er það bara að ganga í gengum allt vesenið við að sækja um atvinnuelysisbætur og svo verður settur kraftur í að finna vinnu þar sem ég rotna lifandi ef ég hef ekkert að gera.. Það er bara eina að maður vill amk fá eitthvað sem er betur launað en bæturnar, maður er líka ekki bara að hugsa um sjálfan sig núna og hver króna skiptir máli.. En eins og ég segi ef ég finn eitthvað sem er (þó það sé ekki nema krónu betur launað haha) betur launað en bæturnar þá tek ég það... Stelpan er reyndar bara hjá dagmömmunni hálfan daginn og fannst mér dásamlegt að þurfa ekki að setja hana lengur en það svona litla, enda finnst mér svona kríli í rauninni ekkert hafa að gera svona lengi í dagvistun nema það sé alger nauðsyn.. En það er það nú líka ef maður er orðin einstætt foreldri og komin með vinnu sem er allan daginn til að hafa í sig og á... En við sjáum bara til hvað gerist... En jæja ég læt þetta nægja svo ég fái ekki sigg á fingurnar, maður er svo dottinn úr því að blogga ;) Hafiði það gott, Hilsen Heiða (sem er orðin hálf ruyðguð í að leika sér að tungumálinu og skrifa smellna brandara inn á milli mikilla þanka )

Posted at 10:29 pm by heida84
Bögg  

Wednesday, February 25, 2009
Hvurslags er þetta eiginlega...

Sælt veri fólkið! Það er að segja ef einhver kíkir enn hér inn, ef svo er vinsamlegast kvittið svo ég viti það og kannski skrifi eitthvað áfram :) Annars er ég búin að eiga eins og allir sem ég þekki vita að ég held :) Ég eignaðist yndislega fallega litla stelpu sem heitir Kristjana Rebecca Reardon. Hún verður 5 mánaða núna 28. febrúar, úff hvað tíminn líður hratt... Þetta er eitthvað það frábærasta sem ég hef tekið mér fyrir hendur í lífinu, móðurhlutverkið er að segja. Þetta er svo gefandi, eitt bros getur bjargað deginum :) Svo er nú ýmislegt "skemmtilegt" sem fylgir þessu líka hehe... Ég er t.d. búin að fá gubbu upp í munninn og nefið, það var æði hehehe... Farið í bað með henni sem henni hefur þótt þurfa eitthvað krydd í svo hún hefur bæði kúkað og pissað í bað með mér og verið alsæl með það hehe.. En maður getur ekki annað en hlegið :) En svona bara af mér er voða gott að frétta. Ég er á kafi að skrifa barnabók sem ég ætla að láta frá mér og sjá hvaða viðbrögð ég fæ. Það gerist þá ekki annað en að það gerist ekki neitt, ég er þá allavegana búin að prufa... Brian og fleiri hafa bara verið að hvetja mig í þessu og ég ákvað eftir svolítið "tuð" að prufa... Finnst þetta samt skrítin tilhugsun hehe... Við erum svo að fara fjölskyldan til Tenerife í endann maí og ég hlakka svo til!! Að komast í hitann og slappa af, við ákváðum líka að fara bara eitthvað 3 núna því við förum alltaf suður eða til Englands ef vi ðeigum einhverja daga aflögu og þá enda þeir bara í snatti hingað og þangað og í heimsóknir út um allt svo við komum næstum þreyttari til baka en við vorum þegar við fórum í frí... En svona er þetta bara... Við ætlum þó að sjálfsögðu eitthvað til Englands í ár, sennilega tvisvar en við verðum bara að sjá hvernig hagar með frídaga og fleira. Við erum svo að fara suður 27. mars þar sem á að ferma Grétar bróðir, þetta er ótrúlegt að það sé verið að fara að ferma hann, mér finnst bara eins og ég hafi verið að passa hann í gær, pínulítinn... En ætli litlu bræðurnir eldist ekki eins og við hin... Bráðum verður hann mættur fullorðinn í fermingu hjá Kristönu Rebeccu hahaha!! En ég held að þetta sé nóg í bili, er komin með þær Freyju og Þórdísi í heimsókn til að horfa á gossip girl og greys :) Stelpukvöld dauðans!! :) Þar til næst, Heiða (sem er móðir í fullu starfi)

Posted at 04:18 pm by heida84
(2) Hafa böggað mig  

Wednesday, September 17, 2008
Ennþá ólétt

Sælt veri fólkið!

Jamm ég er ennþá alveg kas... Rosa gaman hehe... Er hætt að sofa almennilega og orkan er engin! En nú eiga bara að vera tæpar 2 vikur í að krílið láti sjá sig og jafnvel farið að sjást fyrir endann á ljósmæðraverkföllum! 

Alveg mín heppni að langa verkfallið átti að byrja 29. sept og ég sett 30. haha!

Allavegana margt hefur gerst síðan eg skrifaði síðast en ég hef nú samt sennilega heyrt í flestum ykkar síðan þá svo þetta verður bara stutt yfirferð..

Á föstudeginum um versló keyrði ég frá Dalvík heim á leið.  Hefði aldrei lagt í þessa för nema afþví að ljósmæðurnar á Akureyri vildu ekkert skoða mig og sögðu að það væri fullkomlega eðlilegt að vera stanslaust í samdráttum, svo lengi sem það væru engir verkir.  Þær skoðuðu mig samt ekkert þar sem þær voru niðursokknar í eitthvað djúsí spjall inn í litla glerbúrinu sínu.  Allavega með þessi skilaboð í farteskinu keyrði ég EIN heim á Reyðarfjörð.

Þegar ég kom svo heim var ég bara með stanslausa samdrætti í 2 klukkutíma, ætlaði varla að þora að hringja í lækni, því ég var ekki með neina verki og það er ekkert gaman að vera stimpluð móðursjúk.  En málið er nú samt það að það stendur í öllum bókum að ef þú ert með meira en 4 samdrætti á klukkutíma áttu að láta kíkja á þig.

Svoo ég endaði á að hringja í doksa, sem mér til blessunar var kona, líka ólétt! Hún sendi mig beint á Neskaupsstað í mónítór og þá kom í ljós að ég var farin af stað, (ég þarf ekki að hafa mörg orð um hvað ljósmóðirin þar var reið út í ljósmæðurnar (3stk takk fyrir) á Akureyri fyrir að kíkja ekki á mig) svo ég var send suður með sjúkraflugi...

Það hefði verið frábært ef ég hefði nú átt einhvers staðar á möðrudalsöræfum alein hehe...

Allavega í Reykjavík var ég lögð inn á spitala og gefið eitthvað stopp lyf í æð og svo sterasprautur til að flýta þroska lungnanna í barninu.  Þar kom í ljós að á 32. viku var ekki enn búið að blóðflokkagreina mig (eitthvað sem á að gera í fyrstu skoðun) og að ég væri eiginlega alveg blóðlaus í þokkabót svo í mig var dælt vítamínum!

Eftir nokkra daga á spítala var ég útskrifuð ennþá með afkvæmið undir belti (er það samt ekki yfir belti? Ef ég væri með belti þá væri það ekkert um hálsinn á mér...Tjah kannski undir belti en yfir beltisstað).

Ég mátti samt ekkert fara heim því líkurnar á að barnið kæmi samt fyrir tíman voru þó nokkrar svo ég settist að hjá Kristjönu frænku, Brian fór aftur austur en kom í bæinn um helgar.

Dvöl mín í Reykjavík var bara fín, náði að hitta ættingja og vini og slappa svolítið af, fór samt annað slagið upp á spítala í mónítor þar sem samdrættirnir áttu það til að vera meiri en gott getur talist, en var alltaf send heim með því sama því ef barnið ætlaði að koma þá átti það bara að fá að koma þar sem þeir stoppa mann bara einu sinni.

En þrátt fyrir að vel færi um mig í höfuðborginni þá var ég farin að sakna mannsins míns alveg ógurlega, sérstaklega þar sem ég hef varla séð hann neitt í sumar þar sem ég hef dvalið svo mikið hjá Láru systir fyrir norðan og svo bættust við 5 vikur í Rvk. 

Þannig að ég spjallaði við eina ljósuna þegar ég var komin 36 vikur og hún tjáði mér að ef ekkert breyttist þá mætti ég fara heim helgina eftir þar sem ég væri þá komin 37 vikur og þa telst barnið ekki fyrirburi og má koma í heiminn á Neskaupsstað.

Svohh....Nú er ég heima og bíð....

Er náttúrulega eiginlega búin að vera að bíða síðan um versló þar sem mér var sagt að allar líkur væru á að barnið kæmi fyrir tímann fyrst ég hefði farið af stað. (Það var meira að segja sendur barnalæknir á fund okkar Brian til að útskýra allt um fyrirbura og fyrirburafæðingar)

Ég þori varla að hringja í fólk núorðið þar sem um leið og fólk svarar segir það: ,,Ertu búin að eiga?!?" og þegar ég segi; ,,Nei, ég er nú bara að hringja til að heyra í þér." þá er ekki laust við að ég heyri vonbrigði bregða fyrir á hinni línunni.  Svo nú sit ég í einangrun á Reyðarfirði og er á fullu í hreiðurgerð... Veit reyndar ekkert hvað ég get eiginlega gert meira til þess að undirbúa komu þessa barns.

Ragga kom reyndar með mjög góða hugmynd og það var að ég myndi fara að leika mér að því að hringja í fólk á nóttunni (gæti vel dundað mér við það þar sem ég er svefnvana þessa dagana).. Mér fannst það mjög fyndið en mér finndist samt örugglega ekkert gaman þegar kæmi að því að barnið væri komið og enginn myndi svara mér heh!

Ég og Brian höfum ákveðið að halda okkur við barnaland, en við eigum eftir að greiða fyrir síðuna, við gerum það í kvöld eða annað kvöld og verða þá settar inn nýjar fréttir og nýjar bumbu myndir, slóðin á síðuna er í síðustu færslu eða þar síðustu og lykilorðið verður það sama (ef ykkur vantar lykilorð hafiði þá bara samband).

Allavegana ég ætla að láta þetta nægja í bili og halda áfram að gera akkúrat ekki neitt!! (nema bíða zZz...)

Þar til næst

                  Heiða (sem er dæmd til að vera ólétt að eilífu!)


Posted at 03:01 pm by heida84
(6) Hafa böggað mig  

Friday, June 06, 2008
Barna, barna...

Sælt veri fólkið!

Þetta verður mjög stutt og skorinort! 

Í fyrsta lagi eru milljón manns sem kíkja hérna inn í hverri viku á þetta blogg mitt, vinsamlegast kvittið fyrir ykkur annað slagið því annars fer ég að læsa þessu!  Nenni ekki að skrifa og skrifa og það er fullt af fólki sem les en enginn sem segir neitt!  Sem gerir það að verkum að ég veit ekkert hverjir eru hérna inni.

Númer 2, þar sem ég veit ekkert hverjir eru að skoða þetta þá gef ég ekki upp passwordin á því sem ég er að fara að segja ykkur núna en þið sem þekkið mig getið auðveldlega nálgast þau hjá mér.

Ég og Brian erum komin  með bæði barnalandssíðu og barnanetssíðu.  Erum að reyna að velja á milli.  Okkur líst miklu betur á barnanet, en gallin er sá að þar verður maður að hafa draslið á ensku EÐA íslensku en á barnalandi koma upp fánar og fólk getur valið það tungumál sem við á í hvert skipti. 

Við erum með báðar síðurnar frítt í mánuð og erum að ákveða á þeim tíma hvort hentar betur svo endilega kíkiði og látið vita hvað ykkur finnst.  Búin að setja inn bumbumyndirnar og sónar myndir af krílinu.

Linkarnir eru : babyreardon.barnaland.is

                       barnanet.is/babyreardon

Þar til næst

               Hilsen

                  Heiða (sem nennir ekki að blogga fyrir daufum augum)


Posted at 01:08 am by heida84
(4) Hafa böggað mig  

Monday, May 26, 2008
Í rjómablíðu!!!

 

Sælt veri fólkið!

Já ég get ekki sagt annað né verið í neinu nema góðu skapi, hér er góða veðrið búið að leika við okkur í c.a. viku og miða við spár er ekkert farið að sjá fyrir endann á þessu.. Það er um 20° hiti núna og spáir 25° áður en vikan er öll ahhh!!

Þið veltið kannski fyrir ykkur afhverju ég er þá inni að blogga en ástæðan er einföld, kæla mig og hlaupast undan ágengni geitunga !!   Ég er farin að halda að þeir haldi að snöggar hreyfingar sé leikur og þeir æsist bara upp við það að maður tekur kippi við að hafa þá of nálægt sér!

Annars er bara ágætt að frétta, ég stækka hægt og rólega eins og er von og vísa þegar maður er óléttur!  Mér fannst ég hafa staðnað svo en núna finnst mér ég horfa á mig stækka... Komnar bumbumyndir á myspace og facebook fyrir þá sem hafa áhuga

Fórum í 20 vikna sónar og allt leit rosa vel út og okkur var sagt að við þyrftum ekkert að koma aftur í sónar frekar en við vildum. 

Sögðum ljósuni ákveðin að við vildum ekki vita kynið en vorum svo bæði eins og bjánar þvílíkt að rýna í og reyna að sjá það sjálf haha!! Sáum ekki neitt svo ég sagði Brian að hann yrði að vera viðbúin því að þetta gæti jafnvel verið stelpa og hann játti þvi.  Hann hefur neflilega talað mjög mikið um barnið í karkyni.

Við vorum svo sett 30. september, en svo er bara að bíða og sjá hvenær barnið ákveður sjálft að koma haha

Það var þvílíkt búið að vara mig við að maður fengi brúna rák í húðina, niður frá naflanum og ég var sko viðbúin því, en ekki það að ég vissi það ekki fyrir þar sem ég hef verið í kringum ófrískar konur og svo hef ég líka séð myndir af bumbum með svona rák, en það var enginn sem sá sig knúinn til þess að vara mig við því að ég yrði jafn loðin og larlmaður á maganum!!!  

Ég er búin að bíða og bíða eftir rákinni en hún hefur ekkert látið á sér kræla en MAN ég er loðin! Og svo þegar maður ræðir þetta við aðila sem vita meira um málið eins og hjúkkuna mína, frænku, systir og fleira þá segja allir: ,,Já þetta er eðlilegt, fer eftir að þú ert búin að eiga."

Ég hefði frekar verið til í að vera vöruð við þessu en þessari blessuðu rák því hárin sjást kannksi ekki eins vel á myndunum í bókinni en þessi fjandans rák..

Haha allavega!! (þetta er ekki svona rosalega á sálinni á mér í alvöru)

Ég er búin að eyða síðustu rúmu vikunni meira og minna upp í sveit hjá Guðný frænku og það er búið að vera dásamlegt!  Ég hef verið að dúllast með litlu frændur mína svo þau geti unnið og pakkað o.fl.  Þau flytja svo 1. júní svo ég verð sennilega að fara að vera meira heima hjá mér þá.

Vona bara að ég deyji ekki úr leiðindum!  þrátt fyrir gott veður er ekkert gaman að hanga einn allan daginn það er sko alveg klárt mál! 

Enda hef  ég verið dugleg að leggja áherslu á að fólk komi í heimsókn í sumar... í góða veðrið sjáiði til!!!

Svo getur nú vel verið að minn elskulega bróðir komi og búi hjá okkur í sumar ef honum áskotnast vinna hér.  Ég vona það besta... Þá verður hann neflilega á vöktum og þarf að leika við mig þegar hann er í vaktafríi en Brian í vinnunni múhaha  

Æ það yrði nú líka bara voða gaman að fá hann hingað í sumar, ég er búin að sakna hans, hann er alltaf í burtu frá mér einhvers staðar í útlöndum og tímir svo ekki að koma í heimsókn þegar hann er á landinu.  En núna er hann búinn að fá inn í skóla í London (og hér með óska ég honum innilega til hamingju með það!!!(p.s. mundu brósi að ég fer með þér á allar verðlauna afhendinar og svona þegar þú verður frægur!))og mér finnst að það minnst sem hann getur gert er að koma og eyða sumrinu með elskulegri systur sinni áður en hann fer

En ég held að ég láti þetta nægja í bili af bulli frá mér, ætla að ná restinni af sólinni í dag

Þar til næst,

hilsen

             Heiða ( sem er búin að komast að því að hún verður freknótt á handleggjunum eins og pabbi sinn)


Posted at 06:55 pm by heida84
(5) Hafa böggað mig  

Thursday, April 17, 2008
Restin af ferðasögunni og fleira

Sælt veri fólkið!

Héðan er allt gott að frétta og ekki laust við nett sumarskap sökum góðs veðurs mmm... Aldrei þessu vant væri ég samt alveg til í smá rigningu því snjórinn myndi hverfa á nóinu ef það myndi aðeins rigna á hann í þessum hita

Ég ætla nú að halda áfram með söguna af því þegar við hjúin skruppum út.

Hann bað mín sem sagt upp í perlu og var með öskju með sér og í henni gat ég lesið allt um gullsmiðinn sem myndi sérhanna hringinn minn og að við ættum tíma hjá honum á meðan við værum úti, svaka flott!

Morguninn eftir stóðum við svo nýtrúlofað parið í röð á flugvellinum í Keflavík og þá kemur pabbi labbandi þar inn með ferðatösku í hönd, ég fór og heilsaði honum og hélt án umhugsunar að hann væri að skuttla einhverjum túristum úr bústöðunum hjá sér á völlinn.  En þá tók kallinn sér bara stöðu við hliðina á okkur eins og ekkert væri sjálfsagðara.  Eftir smá hik spurði ég: ,,Ert þú að koma með okkur?" Hann vildi ekki meina það og sagðist vera að fara til London, frekar skeptísk en ekki alveg viss horfði ég ringluð á Brian og spurði hvort pabbi væri að koma með og þá sagði hann að ég ætti kannski að athuga hvar hún frænka mín og bróðir væru.

Þá hafði þetta yndi boðið pabba, Kristjönu og Sumarliða (frá Svíðþjóð) með okkur út til að fagna trúlofuninni í trúlofunarpartýinu sem var dulbúið sem hans 30 afmæli! Það var frábært að fá þau með

Kristjana gisti hjá mömmu hans, pabbi á pub/gistiheimili í næstu götu þar frá og Sumarliði hjá Nicolu og Allan.

Þegar við komum svo til mömmu hans Brians spurði hann hana hvað hún væri að gera í september og hún sagðist ekki vera búin að ákveða það og hélt að við værum að fara að segja henni að við ætluðum að gifta okkur með svona stuttum fyrirvara en þá réttum við henni ramma með 2 sónar myndum í.  Hún varð alveg furðulostin en glöð og held ég að þetta barm verði jafnvel pínu dekrað sem fyrsta barnabarnið hennar.  Hún endaði á að kaupa næstum til helminga allt sem við versluðum þarna úti einn daginn, óléttuföt og fleira.  Svo ætlaði ég að finna teppi sem barnig gæti legið á á gólfinu en hún bað mig bara að leyfa sér að koma með svoleiðis nokk í september, voða dúlluleg.

Trúlofunar/afmælispartýið var mjög skemmtilegt.  Brian var rosa ánægður með skíðin sem ég og vinir hans og fjölskyldan mín gáfum honum.  Hann er meira að segja búinn að draga mig upp í Oddskarð með sér til að taka myndir af sér á græjunni!

Við sögðum vinum hans frá óléttunni í partýinu, fyrst byrjaði ég á að tilkynna nokkrum þeirra að ég væri ekki bara að fitna heldur byggi meira þar að baki og þau horfðu skilningssljó á mig og Nicola spurði hvort það væri eitthvað að mér ég væri ekki feit.  Svo við útskýrðum að við ættum von á barni og allir voru voða kátir, mjög hissa! en kátir.  En þar sem þessi útskýring mín á maganum var ekki að virka fór Brian bara að kynna mig sem Heiðu ófrísku unnustuna sína.

Við vorum samt beðin um að koma með aðeins færri óvæntar fréttir með okkur næst haha!

Daginn eftir fórum við á fótboltaleik með Newcastle, þar sem þeir unnu leik í fyrsta skipti í langan tíma, það var skemmtileg upplifun, Brian hafði samt alveg mátt vera pínu minna þunnur haha!

Pabbi, Kristjana og Sumarliði fóru svo á sunnudeginum og þá byrjuðu heimsóknir og verslunarferðir hjá okkur.  Ég fann mér eitthvað af óléttufötum og svona.

Við kíktum líka í dýragarð daginn áður en við létum hanna hringinn því mér finnst alveg ótrúlega gaman í dýragörðum í útlöndum og var það ekkert öðruvísi í þetta skipti, hefði bara viljað hafa aðeins meiri tíma! Fórum á bílnum inn í garðinn og allt út af tíamleysi, Brian skipulagði hahaha!!

Svo gekk bara ágætlega að láta teikna upp hring fyrir okkur, tók reynda 2 tíma í staðin fyrir klukkutíma eins og Brian hafði áætlað þar sem ég geng aldrei með hringi og hef voða takmarkaðar skoðanir á þeim.  Enduðum samt með rosa fína teikningu og nú er bara að bíða og sjá útkomuna... í júlí!!! Úff!  Ég verð sennilega komin með alltof mikinn bjúg þá til þess að hann passi á mig hehe...

Þegar við komum svo aftur á klakann flaug Brian heim og ég varð eftir hjá Kristjönu frænku því mér leið ekkert betur í ennis- og kinnholunum.

Fór aftur upp á Lansa og þar var ég mynduð og svona og komí ljós að einhver göng í nefinu hjá þessum holum eru of þröng og það þarf að svæfa mig og gera aðgerð, sem er by the way ekki gert þegar konur eru ófrískar.  En aftur á móti verður öll slímhúð þarna upp miklu viðkvæmari á meðgöngu sökum hormóna svo ég má búast við þvi að vera svona meira og minna alla meðgönguna!! JEIJ

Ég er komin í 50% vinnu og má alveg búast við að hætta alveg út af þessu, enda leikskóli ekki besti staðinn til að vera á útaf kvefbakteríum og öðrum sýlkum.

En annars er meðgangan að ganga rosa vel, ég finn reyndar rosalega lítið fyrir því að ég sé ólétt, ég stækka bara og er með aðeins minni matarlyst en ég er venjulega með... Borða aðallega eitthvað létt og ferskt, og er sun lolly í miklu uppáhaldi, kjöt og brauð er eitthvað sem ég get alveg sleppt.

Ég er búin að þyngjast um 1-2 kíló, ekki alveg viss hvort þar sem ég var ekki vigtuð í fyrstu skoðun.  Svo fórum við í 16 vikna skoðun á mánudaginn og þá heyrðum við hjartsláttinn í fyrsta skipti og það var mjög skemmtileg upplifun. Kröftugur og flottur hjartsláttur :)

Er svo komin 17 vikur í dag og þetta stendur m.a. á ljosmodir.is um 17 viku: Nýru fóstursins framleiða mikið þvag og fóstrið pissar á 40 - 45 mínútna fresti.  Þvag fóstursins verður því hluti af legvatninu sem fóstrið kyngir svo.

Haha! Geðslega  Ég veit svona er þetta bara og blahbah mér finnst þetta samt fyndið

Ég fór í klippingu í dag og er komin með stutt hár!! Minn maður á eftir að fá sjokk þegar hann kemur heim úr vinnunni! En mér finnst ég voða fín, vantar bara smá lit í húðina og þá lítur þetta allt voða vel út!

Ég reyni að setja inn bumbumyndir, sónarmyndir og sutthársmyndir við fyrsta tækifæri, þarf að fá Brian til að skanna sónarmyndirnar inn fyrst.

En allavega ég byð ykkur vel að lifa og vona að sólin skíni eins mikið á ykkur og hún gerir hér á mig á Reyðarfirðinum góða.

Hilsen

                Heiða  (ófríska konan með drengjakollinn)


Posted at 06:07 pm by heida84
(7) Hafa böggað mig  

Monday, March 31, 2008
Hulunni svipt af leyndarmálinu mikla!!

Sælt veri fólkið!!

Ekki verður þeta langt hjá mér að sinni en ég vildi bara segja ykkur sem ég er ekki búin að segja það nú þegar að við eigum von á okkar fyrsta barni

Er komin tæpar 15 vikur á leið og við erum alveg í skýjunum yfir þessu öllu saman.

Eins og stendur er okkur gefið að barnið muni líta dagsins ljós þann 25. september en sennilega á það eftir að breytast einu sinni til þegar ég fer næst í sónar í byrjun maí.

Ætlaði að setja inn sónar myndir en þar sem ég er ekki komin austur eftir fríið mitt þá gengur það ekki alveg strax, en það sést alveg ótrúlega skýrt á þessum sónar myndum að barnið er mikilli lukku búið og er klárlega alger eftirmynd móður sinnar haha!

Nú er samt komin smá útskýring á djammleysi okkar undan farna mánuði þar sem við ákváðum að segja ekki frá þessu strax.

Annars var frábært úti, ég mun koma með ferðasögu þegar ég er komin heim í rólegheitin. 

Get samt sagt ykkur að kvöldið áður er við fórum út var mér boðið í Perluna að borða og þar bað hann mín  við erum sem sagt trúlofuð!

Ekki er þar samt hálf sagan sögð af óvæntum atburðum í þessari ferð en ég ætla að geyma smá þangað til ég blogga um ferðina.

Ég byð ykkur vel að lifa!

Hilsen

        Heiða (stolt verðandi móðir!) 


Posted at 04:43 pm by heida84
(7) Hafa böggað mig  

Thursday, March 06, 2008
Sagan endalausa...

Sælt veri fólkið!

Þar sem ég setti sjúkrasögu mína hérna niður um daginn held ég að það sé bara eins gott að leyfa ykkur að fylgjast með hvað er að gerast..

Ég þakka kærlega fyrir kommentin og batakveðjurnar, tölvan hérna er í einhverju fokki og leyfir mér ekki að kommenta til baka..

Allavega ég fór aftur til læknis eins og um var talað og þegar ég var komin inn til hans hringdi hann á Akureyri í sérfræðing sem sagði honum að prufa eina aðferð í viðbót áður en ég yrði send norður.

Fínt, hugsaði ég.  Við reddum þessu hér. Ég fékk tíma á Eskifirði daginn eftir og var sagt að þetta tæki svona klukkutíma.

Ég mætti á til settum tíma og var skellt í stól og svo setti hjúkka á mig svuntu og smekk því hún sagði að það sullaðist svolítið þegar þetta væri gert. JAKK!!

Því næst kom blessaður læknirinn inn og byrjaði á sömu sadó meðferð og síðast en sleppti þó blessuðum eyrnapinnunum, setti bara mjórri pinnana upp í vit mín. Ég fann að ég var aðeins betur deyfð en síðast en fann samt alveg brjálaðan þrýsting.

Þegar pinnarnir voru svo teknir út mætti karlinn bara með sprautu sem leit út eins og fínasta sogrör.  Ég hváði yfir mig og sagði: ,,Er ÞETTA að fara inn í nefið á mér???" Hjúkkan reyndi að vera voða hughreystandi og tjáði mér að hún færi nú ekki öll inn..

Þarna var mér gjörsamlega hætt að lítast á blikuna.  Svo var mér sagt að hann myndi stinga þessu inn í nefið og í gegnum eitthvað bein eða merg eða einhvern andskotan og venjulega færi nálin alveg ótrauð í gegn en ef fyrirstaðan væri í þykkari laginu mætti kannski greina smá brest þegar hún ryddi sér braut inn í kinnholuna á mér... Þarna byrjaði ég að svitna, jésús minn!!

Því næst var mér sagt að svo myndi hann tengja risastóra "sprautu" við endan á slöngunni sem var föst við helvítis nálina sem yrði í nefinu á mér og hún yrði full af einhverjum hreinsivökva og vatni og svo yrði í rauninni bara spúlað út! Jammí!! Svo var mér sýndur bakki sem ég átti sem sagt að halla mér yfir þegar hann byrjaði að sprauta og leyfa öllu góssinu að koma út úr nefinu á mér og ofan í hann...

Ég var farin að sjá "pínulítið" eftir því að vakna þennan morgun!

Allavega, blessaður kallinn treður sprautunni á sinn stað og ýtir á kinnina á mér á meðan til að komast í gegnum fyrirstöðuna og með allri minni heppni heyrði ég þvílíka brakið og brestina þegar hann fór í gegn! En var samt þokkalega deyfð.  Svo sprautaði hann vatninu sem var allt í lagi nema að það var ógurlegur þrýstingur og það alveg í góminn á mér.  Bakkinn fylltist af blóði og svo öðru tilheyrandi gumsi..

En svo af því að ég er svo óstjórnlega kúl þá byrjaði ég að láta þau vita að mig væri farið að svima voða mikið, þau kiptu sér ekkert upp við það, þá lét ég þau vita að mér væri flökurt og því næst að ég væri að kafna úr hita.  Þá áttaði læknirinn sig á því að það væri nú bara að líða yfir aumingjans stúlkuna með risastóru nálina í nefinu!

Hjúkkan ætlaði að setja bakkan upp á borðið við hliðina á sér en setti hann ekki nógu vel upp á og því datt hann á hvolf á gólfið með öllu blóðinu og horinu, ekki öfundaði ég þann sem þyrfti að þrífa þetta upp og svo sannaði hún að það er til jafn klaufalegt fólk og ég með því að missa smekkinn framan af mér sömu leið. COOL haha!!

Þegar þarna var komið við sögu átti ég að reygja hausinn upp á meðan hún þrýsti honum niður en ég fann bara hvernig allur máttur var að fjara úr mér, ég gat ekki einu sinni stjórnað eigin höndum svo læknirinn sagði að ég skildi leggjast á bekkinn þarna inni, en reyna samt að passa að nálinn dytti ekki út..

Mér var andskotans sama um þessa nál akkúrat þarna!

Ég var orðin hálf skrítin í hasunum þarna þegar ég lagðist á bekkinn og reif upp peysu mína og bol, upp að brjóstum takk fyrir og ermarnar upp líka og stundi:,,Mér er svo heitt eitthvað." Þegar ég var búin að því fannst mér ég endilega þurfa að fletta buxunum upp um mig og sýna þeim 66°n gamósíurnar sem ég var í... Veit ekki alveg hver tilgangurinn í því var, en þau brostu bara og kinnkuðu kolli. Svo laug ég því óvart að þeim að ég hefði ekkert borðað og þess vegna hefði sennilega næstum því liðið yfir mig.  Það var ekki fyrr en20 mínútum seinna sem ég mundi að ég hafði einmitt henst inn í shell á Eskifirði og fengið mér pylsu með öllu 10 mín áður en ég átti að vera mætt, til þess eins að vera ekki þarna á tóaman maga!!

Allavega, þegar ég var svo hætt að vera svona gasalega vönkuð var sprautað 2 sinnum í gegn í viðbót og gekk bara ljómandi vel, miða við allt og allt! Læknirinn bauð mér svo að liggja kyrr og færa mér kaffi til þess að koma blóðþrýstingnum aðeins upp aftur.  Ég þáði það með þökkum.

Þegar allt var svo búið gaf hann mér lyfseðil upp á sterasprey og annan tíma að viku liðinni, sem sagt næsta miðvikudag, vó hvað ég hlakka til þess dags!! Þá ætlar hann að taka röntgenmynd og sjá hvort þetta hafi virkað.  Ef ekki held ég að hann megi leika þennan sama leik einu sinni enn áður en hann sendir mig norður.

Ég er búin að krossleggja allar tær og fingur um að þetta sé að verða skárra.

En reyndar þá er ég farin að hósta eins og ég eigi lífið að leysa núna og heldur það vöku fyrir mér, sem veitir mér ómælda ánægju!! Andsk! Mig vantar að hvíla mig! Og mér finnst ég ennþá alveg jafn stífluð en ég reyni að segja sjálfri mér að það sé því þetta er allt að losna. Panntaði samt símatíma hjá lækni í morgun til að vera alveg viss, heyri í honum á morgun. 

En svo í kvöld fór ég í mat til Sean sem vinnur með Brian og þá bættist í einkenni mín að ég er með sáran eyrnaverk og verk í kjálkanum í kringum eyrað, guð hvað ég var ánægð með að hafa pantað símatíma hjá lækni á morgun, í morgun (ekkert flókið!)

Ég er að spá í að fara bara að enda hvalir mínar og láta taka mig í sundur og selj mig í parta... Það hlýtur að vera eitthvað nothæft við mig, haha!! Ég er orðin frekar þreytt á því að staulast um eins og gamalmenni, ég er  komin með millirifjagigt af öllum hóstanum og er þvílíkt stúrinn út af svefnleysi, það er ekki sjón að sjá mig, það er alveg á hreinu!

Jæja ætla að halda áfram í Pollíönnuleik og lesa dramatískar sannsögulegar bækur um ófarir annara og þá fatta ég kannski að blóðnasir, eyrnaverkur, svefnleysi, millirifjagigt og stanslaus hósti er ekkert til að vera að væla yfir.

Vonandi verða næstu fréttir af mér í aðeins bjartari kanntinum..

Ég byð ykkur vel að lifa!

Hilsen

          Heiða (sem vill alveg fara að fá Brian sinn heim að hugsa um sig)


Posted at 11:45 pm by heida84
(6) Hafa böggað mig  

Monday, March 03, 2008
Oðin langþreytt á þessu!!

Sælt veri fólkið!

Vá 2 blogg á 2 dögum, ég atti að fá einhver verðlaun, eru þau í boði eða??

Ég á jafnvel eftir að blogga aðeins á næstunni þar sem ég er að deyja úr leiðindum og þarf að vera heima þessa viku...

Þannig er mál með vexti að fyrir rúmum 3 vikum fengum ég og Brian flensuna og ég fór til læknis þar sem ég má eiginlega ekki fá kvef án þess að fá sýkingu í ennis- og kinnholurnar.  Ég spurði þann góða mann hvort ég gæti ekki gert eitthvað til að fyrirbyggja að það gerðist í þetta skipti.

Hann horfði fullur meðaumkunar á mig (og hálf skilningsljór) og sagði: ,,Nei þú ert sko bara með flensuna."

Ég fór heim með það, svo líður vikan og á laugardegi (6 dögum seinna) hringi ég á læknavaktina þar sem ég fann að andlitið á mér var að springa úr slími og hor.

Sá læknir hitti mig á sunnudegi, setti mig á sýklalyf sem heita kåvepenin og sagði mér að taka eina töflu einu sinni á dag en taka því rólega í a.m.k. 2 daga í viðbót. (shit þetta þýddi að ég missti 2 daga í viðbót úr vinnu og því búin að missa 7 daga í það heila).

Á miðvikudegi fer ég svo aftur í vinnuna og fæ að vera inni þegar það er útivist.  Þegar næsti sunnudagur skall á hringdi ég aftur í læknavaktina og var þá annar læknir á vakt ég sagði honum sögu mína og hann sagði að þessi lyf duguðu ekkert í svona litlum skammti ég yrði að taka tvær töflur tvisvar á dag og ef ég gerði það ætti ég að finna mun strax.

Ég eins og vel uppalinn krakki hlýddi bara því sem mér var sagt en fór áfram í vinnuna.

Eftir 4 daga til viðbótar var ég komin með verki nirðí tennur og þolinmæðin fyrir inniveru minni í leiksólanum á þrotum og ég send út 2 daga í röð án þess í rauninni að líða neitt betur, klukkutíma í seinna skiptið í nístandi kulda, ekki gott!

Þar sem ég var alveg búin á því andlega og líkamlega hringdi ég aftur á læknavaktina þann fimmtudag líka þar sem ég var með svo mikinnn verk í tönnunum að ég sá fram á súpu og jógúrtát í einhvern tíma ef eitthvað væri ekki að gert.  (maður fær sko verk í tennurnar út af þrýsting í andlitinu út af þessum viðbjóð).

Heyrði þá í 3ja lækninum (þeim sem ég fæor til í upphafi út af flensunni), hann sagðist ekekrt ætla að lasta collega sína en þetta væri arfa vitlaust, ég þyrfti nú sennilega í aðgerð en hann gerði hana ekki svo hann setti mig á augnmentin sýklalyf 600 og eitthvað mg. Eitur!  

Svo leið helgin sem leið og ég á þessu sterka lyfi sem átti að virka eins og fyrir töfra, jú ég losnaði við verkinn í tönnunum en er ennþá svo stífluð að það mætti halda að þegar ég væri sofandi að Óli Lokbrá hafi læðst með litla steypuhrærivél og hellt slatta af steypu upp í nefið á mér.  Ég er búin að vera gjörsamlega stífluð!!

Ég þurfti svo að fara í einhverja blóðprufu út af allt öðru á Eskifirði í morgun kl.8:30, ég spurði hjúkkuna góðlega hvort það væri ekki möguleiki á að fá tíma hjá lækni og hún sagðist geta sett mig í símatíma kl. 11 og spurði hvort það væri nógu gott. Ég sagði já með svo miklu hiki að hún fattaði að það væri bara alls ekki nógu gott svo hún sagði að læknirinn kæmi um 9 hvort ég vildi bíða og hún myndi sjá hvort hún fengi hann ekki til að troða mér að.

Jújú ég vildi það.

Þegar læknirinn kom (sem var læknir númer 2, sem setti mig á daufa kåvepenin kúrinn í upphafi) gerði hann loksins eitthvað af viti!!!

Ég var send í röntgen og kom í ljós að önnur kinnholan er ALGJÖRLEGA stífluð og hin mikið bólgin.  Hann sagðist ætla að reyna að stinga á þetta sjálfur, ef það virkaði ekki þá yrði hann sennilega að senda mig norður á Akureyri til háls-nef- og eyrnalæknis.

Flott mér leyst vel á að reyna að losa um þetta...Þar til ég sá hvernig hann ætlaði að gera það!!!!

Hann sprautaði deyfidrasli í nefið á mér, sem deyði bara kokið á mér og lak niðrá varirnar á mér og þær urðu dofnar líka.  Og áður en kremið var nokkuð byrjað að virka stakk hann tveim ör mjóum pinnum upp í hvora nös, sem var SÁÁÁRT!! Það láku nokkur tár niður vanga minn, en ég reyndi að sjálfsögðu að taka þessu eins og hetja, þegar þessir 4 pinnar voru komnir á bólakaf inn í andlitið á mér og stóðu svona 10 cm út úr nefinu á mér sagði hann mér að hinkra aðeins.

Ekkert mál, ég reyndi að fá mér vatnssopa til að ná þessu hrikalega bragðandi deyfikremi úr hálsinum á mér sem gekk ekki vel.  Reynið að drekka eitthvað úr mjóu íláti með spjót út úr nefinu.

Löngum hálf tíma seinna kom hann og kippti þessu úr nefinu á mér og ég taldi mér trú um að þetta væri búið en neinei!! Þá mætti hann með gula eyrnapinna og vildi stinga þeim næst upp í nefið á mér og þeir voru helmingi breiðari en hitt draslið sem hann hafði þröngvað upp í öndunarveg minn. Ég lét mig hafa það en ÁIII!!

Gulu eyrnapinnarnir voru svo látnir standa út úr nefinu á mér jafn lengi og hinir pinnarnir en þegar hann var að fara að taka þá út sagði hann að ég yrði að snýta mér þegar hann væri búinn að því og ef eitthvað hefði losnað þá myndi hann gera þetta einu sinni á dag í nokkra daga þar til allt væri komið en ef þetta virkaði ekki þyrfti hann sennilega að senda mig norður til sérfræðings.

Mín heppni var að sjálfögðu sú að ég blés og blés og ekkert geriðst, ég var orðinn eldrauð í framan og komin með svima þegar ég játaði mig sigraða.

Hann sagðist vilja hitta mig aftur á morgun klukkan 15 og þá myndum við ræða hvað yrði gert í frmahaldinu.  Ég held að hann ætli að heyra í háls- nef- og eyrnalækninum í milli tíðinni. Frábært!

Og til að kóróna allt sagði hann að ég væri lasin og algerlega útkeyrð og ætti að ekki að fara í vinnuna a.m.k. út þessa viku svo það var mjög stressuð ung kona sem gekk á fund vinnuveitanda síns um hádegisleyti til þess að láta vita að hún yrði meira frá vinnu út af þessum hvimleiða vanda!

Ég kíkti svo á Maríu Sif sem lánaði mér bækur,svo ég tapi nú ekki geðheilsunni líka á stanslausu sjónvarpsglápi og svefni næstu vikuna.  Þannig ég ætla að týna mér með bólgið og aumt nefið í bók næstu daga.

Svo er bara að fara til læknis á morgun og fá að vita hvort ég er að fara að gera það á Akureyri eða hérna á Reyðafirði.

A.m.k. er LOKSINS búið að skoða mann almennilega og ég búin að fá staðfestingu á að þetta sé ekki eintóm ýmindun og móursýki í mér.  Það er líka ekkert sniðugt að vera á sýklalyfjum stanslaust í 3 vikur...

Jæja þið sem entust í gegnum þessa ótrúlega skemmtilegu sjúkrasögu vil ég byðja vel að lifa haha.. Þið hin, tjah ykkur er greinilega sama um mig, grátur!! Haha...

Hilsen

          Heiða (sem er kannski, KANNSKI að fara að hætta að vera veik) 


Posted at 10:39 pm by heida84
(2) Hafa böggað mig  

Sunday, March 02, 2008
nýjustu fréttir

Jæja ælti það sé ekki kominn tími á að blogga...

Ég man ekki einu sinni hvað var að gerast í mínu lífi síðast þegar ég bloggaði en það hefur sennilega ekkert verið neitt mikið sem hefur gerst í milli tíðinni því þetta er nú bara sá árstími að maður sefur, vinnur og étur.

Þetta er klárlega ekki minn tími ársins, alltof kalt og dimmt!!  Það var gaman að fá alvöru snjó í smá tíma en núna má þetta alveg fara að vera komið held ég!

Mig er farið að langa í sól og sumar!! Fara i útilegur og fara út að labba án þess að líta út eins og belja á svelli bæði af því að það er svo mikil hálka og líka því maður er svo mikið dúðaður að það er erfitt að sjá hvort þarna sé manneskja á ferð.

Svo vil ég líka bara fara að komast þangað sem mig langar án þess að þurfa að vera hrædd um að hrapa eða lenda út af, er komin í hálf gerða sjálfheldu hérna á Reyðafirði og það hentar mér ekki mjög vel.

En nóg af árstíðar röfli, það er allavega farið að sjást til sólar hérna núna í nokkra tíma á dag sem er ekki sjálfgefið hér þar sem hún hverfur mönnum og dýrum í einhverja 3 eða 4 mánuði hérna á veturnar út af öllum fjöllunum hér í kring.

Ég er að flytja úr blokkinni og íbúðinni með stelpunum í hús hérna á Reyðafirði, er búin að koma öllu draslinu mínu yfir, vantar bara gluggatjöld og svona til að geta sofið þar svo ég held til í íbúðinni hans Brians í bili.

Það er svo skrítið að það er ódýrara fyrir mig að leigja raðhús með 2 svefnherbergjum hérna heldur en blokkaríbúð með einu svefnherbergi!! En það er bara fínt fyrir mig! Nóg pláss ef einhvern vantar gistingu ! :) Meira að segja komin með rúm í gestaherbergið og allt!

Nýja húsið er voða bjart og fínt.  Ég á bara eftir að snurfusa þar, er búin að raða upp öllum stóru húsgögnunum, gerði það í gær, en þarf svo að fara og raða smáhlutum og setja föt inn í skáp og svona.

Brian er út í Frakklandi núna á skíðum (valdi sko pott þétt þennan tíma til að þurfa ekki að bera í gær þegar við vorum að flytja allt dótið haha!) og ég er voða lonlý eitthvað, hann fór reyndar bara á föstudaginn en það er ótrúlegt þegar maður er alltaf með einhverjum (nema þegar maður er í vinnunni) hvað maður verður einmanna fljótt ef hann fer eitthvert.  En hann kemur aftur 9. mars svo ég verð bara að vera dugleg stelpa og dunda mér upp í húsi þegar ég hef frítíma og þá er þetta enga stund að líða.

Um páskana erum við svo að fara út, förum til Newcastle að halda upp á afmælið hans með vinum og fjölskyldu. Förum á skírdag og komum aftur 30.

Karen og Arnar ætla með okkur og þetta verður FRÁBÆRT!! Þá fæ ég líka nasaþef af vorinu, þar sem það verður byrjað að vora þar á þessum tíma JEIJ!!

Í sumar fæ ég 5 vikna sumarfrí og Brian nær bara að taka 2 með mér því núna er hann að nota hluta af sumarfríinu sínu og svo aftur um páskana svo ég ætla að reyna að vera ótrúlega dugleg að ferðast með sjálfri mér, kíkja á systur mínar fyrir norðan og svona, nýta sumarið! Svo ef einhvern langar í útilegu eða eitthvað þá er ég game!! Verð í fríi frá 7. júlí til 8. ágúst..

En ég held að ég láti þetta nægja í bili og skrifi kannksi bara aftur flótlega í staðinn haha!!

Hilsen

         Heiða (sem er orðin þreytt á að vera lasin... rúmlega 3 vikur er miklu  meira en góðu hófi gegnir!)


Posted at 02:05 pm by heida84
(2) Hafa böggað mig  

Next Page